Tímamót

Þann 9. maí árið 2022 var Evrópuhreyfingin stofnuð og tók hún þá yfir eldri félög: Já Ísland og Evrópusamtökin.
Evrópuhreyfingin hefur starfað af krafti síðan og unnið að því að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið.


Ný ríkisstjórn hefur svarað kalli Evrópuhreyfingarinnar og raunar mikils meirihluta kjósenda sem sögðu skýrt og greinilega að það væri mikilvægt að halda á þessu kjörtímabili þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna. Ekki verður öðru trúað en allir alþingismennirnir 63 afgreiði þingmál um slíka atkvæðagreiðslu fljótt og vel.


Stjórnarsáttmálinn
„Með utanríkisstefnu sem byggir á mannréttindum, friði, virðingu fyrir alþjóðalögum og náinni samvinnu við Evrópusambandið, önnur norræn ríki og Atlantshafsbandalagið. Mótuð verður öryggis- og varnarmálastefna. Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu fer fram eigi síðar en árið 2027. Í upphafi kjörtímabilsins verður óháðum erlendum sérfræðingum falið að vinna skýrslu um kosti og galla krónunnar og valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum“.
Í fyrsta skipti í sögunni fá Íslendingar beina og millilausa aðkomu að ákvörðunum um tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þeim tímamótum fagnar Evrópuhreyfingin og um leið pólitísku hugrekki ríkisstjórnarflokkanna þriggja sem hafa sameinast um að spyrja þjóðina og leysa þannig úr þeim pólitíska vanda, eða öllu heldur flokkspólitíska ómöguleika, sem sumum stjórnmálaforingjum hefur orðið tíðrætt um“.


Evrópuhreyfingin mun leggja sig alla fram við að stuðla að upplýstri og málefnalegri umfjöllun um af hverju atkvæðagreiðslan er mikilvæg. Sömuleiðis mikilvægi þess að meirihluti þjóðarinnar greiði atkvæði með því að aðildarsamningur verði leiddur til lykta og leggi þannig blessun sína yfir að ferlið sem Alþingi hóf með þingsályktun árið 2009 verði klárað. Lokahnykkur þess er svo að leggja fullbúinn samning fyrir í annarri þjóðaratkvæðagreiðslu. Þar ræðst svo endanlega hvort Ísland verður eitt af aðildarríkum Evrópusambandsins.

Verði þetta niðurstaðan þessi fer þjóðin sjálf með þetta mikilvæga mál frá upphafi til enda.